• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Samskipti, líðan og skólabragur Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 09. september 2010 12:03
Kæru foreldrar!

Nú er farin í gang vinna hjá 1.-5. bekk í samvinnu við sálfræðing skólans.  Ákveðið vinnuferli verður í gangi í samstarfi við nemendur starfsfólk og foreldra með það að leiðarljósi að bæta líðan nemenda hvar sem er í skólanum og gera skólabraginn glaðlegan og skemmtilegan.   Inga sálfræðingur mun koma hingað aftur 12. október og þá er áætlað að hafa fund með foreldrum kl. 15.30. Fram að þeim tíma munu kennarar vinna með ýmsa þætti sem tengjast þessu.  Viljum við biðja ykkur að taka þann tíma frá því í svona vinnu er nauðsynlegt að hafa alla með.  Allt er þetta jú gert í þágu barnanna okkar.

Bestu kveðjur

Skólastjóri
 
Grænfánaverkefni Grunnskóla Grundarfjarðar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 09. september 2010 12:02

Grunnskóli Grundarfjarðar er "skóli á grænni grein" og stefnir að því að fá Grænfánann innan skamms. Verkefnið er alþjóðlegt og tilkomið til þess að auka umhverfismennt og styrkja umhverfsstefnu í skólum. Markmið skólans fyrir þetta skólár eru eftirfarandi:

  • Marka umhverfisstefnu fyrir skólann
  • Meta stöðu skólans í umhverfismálum
  • Kynna fyrir nemendur og starfsfólki Grænfánaverkefnið
  • Hvað merki að "vera skóli á grænni grein"
  • Kynna verkefnið fyrir grenndarsamfélaginu með því að setja upplýsingar inn á heimasíðu skólans
  • Fræðsluefni fyrir nemendur í tengslum við gámastöð, sorpflokkun og fleira
  • Spara rafmagn eftir því sem hægt er
  • Spara pappír og flokka í gæðapappír og blandaðan pappír
  • Koma matarúrgangi í réttan farveg
  • Minnka notkun einnota umbúða innan skólans

 
Meira af lúsinni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 25. ágúst 2010 14:15

Aftur hefur lúsin látið á sér kræla og viljum við minna foreldra á að kemba hár barna sinna. Til að koma í veg fyrir frekari smit er gott að minna börnin á að setja húfurnar inn í ermarnar á úlpunum svo þær liggi ekki saman á snögunum.

Skólastjóri

 
Lús Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 13:55
Til foreldra/forráðamanna nemenda.
Þar sem lús hefur fundist hjá nemendum á grunnskólaaldri eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að kemba vel hár barna sinna svo að uppræta megi lúsina sem fyrst. Best að það sé gert áður en skólinn byrjar til að koma í veg fyrir frekari smit. Nauðsynlegt er að kemba einu sinni til tvisvar á dag.

Skólastjóri

 
Vorskólinn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 28. maí 2010 09:47

vorskoli2004

Í vetur hefur verið gott samstarf á milli leik- og grunnskóla eins og undanfarin ár.  „Brúum bilið" verkefnið hefur fest sig í sessi og hafa elstu börnin í leikskólanum komið í nokkrar heimsóknir í grunnskólann í vetur. Dagana 17. - 21. maí var svo komið að vorskólanum.  Íslenska fánanum var flaggað í tilefni af komu barnanna en það er ávallt mikil tilhlökkun hjá börnum, foreldrum og starfsfólki skólans þegar komið er að þessum tíma.  Fjölbreytt dagskrá var þessa daga. Nemendur fengu meðal annars að prófa sund, smíðar, textílmennt, heimilisfræði og tölvur, að ógleymdu að fá að takast á við stærðfræðitengd viðfangsefni og stafaverkefni. Jafnframt fengu börnin tækifæri til þess að heimsækja heilsdagsskólann og krakkana sem þar eru.  Það sem var þó mest spennandi hjá börnunum þessa daga voru nestið  og frímínúturnar, kom meðal annars kvörtun um hvað þær væru stuttar.  Við þökkum fyrir frábæra samveru  og hlökkum til komandi hausts.

María Ósk Ólafsdóttir

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 19

Tilkynningar

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er komið á netið.  Hægt er að nálgast það hér hægra megin á síðunni.

 

Að skoða síðuna núna

Það eru 5 gestir á síðunni núna