• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Skýrsla stjórnar október 2009 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 08. janúar 2010 12:06

Skýrsla stjórnar á aðalfundi 12. október 2009.

Við viljum byrja á því að þakka bekkjarfulltrúum síðasta árs, stjórnendum skólans, nemendum og foreldrum fyrir gott samstarf.

Starfið síðasta vetur var mjög öflugt og getum við þakkað það fjöldamörgum aðilum sem studdu okkur vel til verka. Þann 26. nóvember héldum við jólaföndurdag með nemendum, systkynum og foreldrum grunnskólans. Jólaföndrið var haldið fyrir yngsta stig og miðstig og einnig var elstu börnum af leikskólanum boðið. Mjög vel var mætt á báðum aldursstigum og einnig hjá elstu leikskólabörnunum en inn á milli komu unglingar með þeim yngri og fögnuðum við því mjög. Við höfðum aðgangseyrin í algjöru lágmarki og rukkuðum ekki nema kr. 800 á fjölskyldu og var innifalið í því verði eitt stykki servíettustandur, eitt jólahjarta úr filtefni og síðan var hægt að búa sér til armband úr perlum og var þetta allt mjög vinsælt. Servíettustandurinn var sagaður út úr mdf. efni sem skólinn gaf Foreldrafélaginu og sáu stjórnarmenn algjörlega um þá vinnu með dyggri aðstoð Óskars smíðakennara og viljum við nota tækifærið til að þakka bæði Grunnskóla Grundarfjarðar og Óskari fyrir það. Þetta var heilmikil vinna en okkur fannst þetta mjög skemmtilegt og vorum svo heppinn að ein móðir sem átti þá barn í leikskóla kom til að aðstoða okkur. Nú þegar er ákveðið að halda jólaföndrið í nóvember næstkomandi og höfum við fengið fyrirspurnir um hvort það verði ekki alveg örugglega. Krakkar og foreldrar 8. Bekkjar sáu um kakó og vöfflusölu á jólaföndrinu og fannst fólki það mjög notarlegt að hafa möguleika á því að kaupa sér vöfflu og kakó. Nemendur í 8. bekk fóru síðan í skólabúðir UMFÍ að Laugum í Sælingsdal og var þessi fjáröflun látin renna í sjóðinn  þeirra sem síðan var notaður í skólabúðirnar.

Næsta verkefni var aðstoðin við Herra X og gekk það eins og í sögu og höfðum við mikla ánægju af því samstarfi sem skilaði sér í mörgum breiðum brosum.

Við fengum beiðni frá Grunnskólanum um að styrkja unglingastigið til að komast í rútu inn í Stykkishólm til að sjá leikritið ,,Jesús Guð Dýrðlingur" og veittum við þann styrk en sömdum fyrirfram við krakkana að í staðinn kæmu þau til að hjálpa okkur á jólaballinu sem við héldum á milli jóla og nýárs. Jólaballið var haldið í samkomuhúsinu og komu unglingarnir til að hjálpa okkur og voru þau alveg hreint frábær í því samstarfi. Jólatréð var sett upp eftir nokkra ára hlé en við vorum ekki nógu dugleg að verðleggja þessa skemmtun þar sem við létum ekki borga nema 200 kr. fyrir hvert barn og vorum því í stórum mínus. Reyndar gerðum við tilraun til að fá leiguna á Samkomuhúsinu niðurfellda en því var hafnað af Bæjarráði með þeim rökum að húsið þyrfti að standa undir kostnaði og því væri hægt að gefa okkur 75 % afslátt af leigunni. Jólaballið var því rúmar tíu þúsund í mínus en hefði verið nálægt núlli ef við hefðum fengið leiguna niðurfellda.

Þrettándinn var haldinn í roki og rigningu inn við Gröf og lentum við í miklum vandræðum með að fá ábyrgðarmann fyrir henni. Eftir mikið basl vorum við búin að finna ábyrgðarmann en hann boðaði forföll vegna vinnu þannig að við vorum í miklum vandræðum og allt á síðustu stundu. Síðan fórum við í það að safna styrkjum frá fyrirtækjum upp í flugeldasölu en gekk það ágætlega en betur má ef duga skal. Björgunarsveitin hélt mjög glæsilega flugeldasýningu og þökkum við þeim vel fyrir það. Stjórnin fundaði með bekkjarfulltrúum fyrir stuttu síðan og var sú ákvörðun tekin á þeim fundi að hverfa frá því að halda brennu á næstkomandi þrettánda þar sem Foreldrafélag Grundarfjarðar er ekki í stakk búið til að halda utan um alla þætti þessarar þrettándagleði og er þetta alltof stórt verkefni fyrir félagið að standi í eitt. Ákveðið er að finna skemmtidagskrá sem bæði nemendur og aðstandendur geta tekið þátt í en eftir er að fullmóta þá hugmynd.

Öskudagsskemmtun var haldinn á öskudag niður í Félagsmiðstöðinni Eden og tókst hún vel með dyggri aðstoð séra Aðalsteins sem hélt uppi stanslausri dagská allan tímann fyrir yngsta og miðstig. Um kvöldið sá Félagsmiðstöðin um að halda ball fyrir unglingastigið en við keyptum inn sælgæti fyrir þá skemmtun.

Hefð er fyrir því að Foreldrafélagið styrki 7. bekk hvers árs í leikhús og fengum við þann bekk til að standa fyrir bingóskemmtun sem var haldinn í Samkomuhúsinu með nokkuð góðri mætingu bæjarbúa. Sáum við að góður grundvöllur er til að halda því áfram og ætlum við að endurtaka það á næsta ári. Reyndar kom ekki til að við styrktum nemendur 7. Bekkjar þessa vetrar til leikhúsferðar þar sem engin spennandi sýning var í boði seinnipart vetrar, þannig að í ár munum við styrkja bæði 7. bekk og 8. bekk til leikhúsferðar.

Að síðustu var boðið upp á mjög veglegt kaffihlaðborð á skólaslitum og fengum við þar  mikla og góða aðstoð bæði við bakstur og annað.

Fundur var haldinn með bekkjarfulltúum og samþykktu þeir að í stjórn sætu  Ingibjörg Sigurðardóttir og Valgeir Magnússon sem formenn, Lína Hrönn Þorkelsdóttir og Aðalsteinn Þorvaldsson  gjaldkerar, Dagbjört Lína Kristjánsdóttir og Halldór Kristinn Halldórsson sem ritarar. Fráfarandi úr stjórn eru þau Arna Hildur Pétursdóttir og Ragnar Börkur Ragnarsson sem hafa starfað sem gjaldkerar og þökkum við þeim fyrir vel unninn störf.

 

Að skoða síðuna núna

Það eru 5 gestir á síðunni núna