• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
EINKUNNARORÐ Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 21. janúar 2009 13:03

Metnaður
Að gera ávallt sitt besta í leik og starfi og sýna sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum sem einstaklingur og í samstarfi við aðra. Hafa metnað fyrir því að ná settum markmiðum og gera kröfur til sín:   GET- ÆTLA-SKAL
 
Ánægja
Sýna gleði, jákvæðni og virðingu í samskiptum.  Starfsfólk og nemendur njóti sín í vinnuumhverfinu og finni fyrir öryggi og vellíðan.  Vera dugleg að hrósa, brosa og veita jákvæða umbun. SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI
 
Samvinna
Vinna sameiginlega að settum markmiðum og vera heiðarlegur í samskiptum.  Vera jákvæður í samvinnu við aðra, virða skoðanir annarra og vera tilbúin til málamiðlana þegar þörf er á.  Allir fái að njóta sín í starfi og leik. ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.
 
Ábyrgð
Vera ábyrgur í gjörðum og hegðun gagnvart sjálfum sér og öðrum  Sýna virðingu og tillitsemi í samskiptum, axla ábyrgð á eigin starfi og námi og vinna það sem ætlast er til.  Ganga vel um eigur sínar og annarra og vera ábyrgur gagnvart umhverfinu. HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR 

 

Að skoða síðuna núna

Það eru 5 gestir á síðunni núna