| Mat á skólastarfi |
|
|
|
Skv. lögum skal sérhver skóli meta skólastarfið og innleiða aðferðir til þess. Skólum er frjálst að velja sér aðferðir til að meta starfið og hefur verið ákveðið að nýta sér matstækið Skólamat við Grunnskóla Grundarfjarðar. Staðan er sú að haustið 2008 hófst nýtt matsferli sem á að rúlla kerfisbundið þannig að tekið sé á öllum þáttum starfsins á ákveðnu tímabili. Matið fer ýmist fram í formi vefkannana, viðtala eða matsfunda. Stefna okkar er sú að skólamatið skili okkur upplýsingum, gögnum og niðurstöðum sem sýni okkur styrkleika og veikleika stofnunarinnar. Markvisst þarf síðan að vinna umbótaáætlanir til þess að taka á veikleikunum og jafnframt styrkja í sessi það sem gott er. Að matsferlinu koma starfsmenn skólans, nemendur og foreldrar þannig að sýn sem flestra endurspeglist í matinu. Niðurstöður úr könnunum sem teknar voru í mars 2010. Nemendur Nemendakönnun náms og kennsla nr. 4 Nemendakönnun nám og kennsla nr. 5 Nemendakönnun nám og kennsla nr. 6 Nemendakönnun nám og kennsla nr.7
Foreldrar Foreldrakönnun nám og kennsla nr. 5 Foreldrakönnun nám og kennsla nr. 6 Foreldrakönnun nám og kennsla nr. 7 Foreldrakönnun nám og kennsla nr. 8 Niðurstöður úr könnunum sem teknar voru haustið 2009. Hér er að finna fyrstu vefkannanirnar sem eru um líðan. Nemendur og foreldrar svöruðu könnuninni nú í nóvember 2008 og eru niðurstöðurnar að finna hér á síðunni. Nemendakönnun 3 - almennt um skólann Foreldrakönnun3 almennt um skólann 1 Foreldrakönnun4 almennt um skólann 2 |