| Stoðþjónusta |
|
|
| Miðvikudagur, 23. september 2009 00:00 |
|
Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga mun áfram sjá um skipulag á sérfræðiþjónustu fyrir skólann en einnig sér hún um að skipuleggja námskeið fyrir skólafólk. 23. september 2009 Námsráðgjafi Hulda Skúladóttir ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ), er kennslu- og námsráðgjafi hjá Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Hún verður í Grunnskóla Grundarfjarðar til viðtals alla þriðjudaga frá kl. 9:00-12:00 og lengur ef þess þarf. Ritari eða skólastjóri sjá um að bóka tíma hjá Huldu en einnig er hægt að hafa beint samband við hana. Sími hennar er 8917805. Kennslu og námsráðgjafi metur námslega og félagslega stöðu nemenda, veitir kennurum, nemendum og foreldrum sem til hans leita ráðgjöf og fræðslu. Námsráðgjafi er málsvari nemenda. Ásthildur Snorradóttir, talmeinafræðingur þjónustar skólann í vetur. Skólinn mun vísa málum til hennar í samráði við foreldra. |