• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Óvænt heimskókn Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 06. maí 2010 12:10

Það er ekki ofsögum sagt að íþróttáhugi er mikill hér í Grundarfirði þessa vordagana. Fólk á öllum aldri sést hlaupandi um víðan völl og gerir krefjandi æfingar inn á milli.  Auk þessa er ásóknin í íþróttahúsið og sundlaugina mikil. Þrátt fyrir þennan mikla íþróttaáhuga mannfólksins brá umsjónarmanni íþróttahússins í brún þegar músarkríli gerði sig líklegt til að spreyta sig í íþróttasalnum. Mýsla fór ekki að leikreglum og var henni vísað frá, ekki þó í sturtu. Henni var komið fyrir í glerbúri og færðir ávextir og annað góðgæti. Nemendur gátu virt þennan óboðna gest fyrir sér.  Eftir góða máltíð var mýsla færð út í móa í nemendafylgd.

hagamus2

 

Að skoða síðuna núna

Það eru 7 gestir á síðunni núna