|
Þriðjudagur, 26. ágúst 2008 00:00 |
|
Grunnskóli Grundarfjarðar var settur mánudaginn 25. ágúst. Nemendur eru nú 126 og hefur fækkað verulega síðustu ár. Samkennsla hefur aukist vegna þessa og er nú samkennt í nokkrum fögum í yngstu árgöngum og í íþróttum. Þrettán kennarar og þrír leiðbeinendur eru nú starfandi við skólann auk skólastjórnenda. Einnig mun Tryggvi Hermannsson sem ráðinn hefur verið sem organisti og kennari við tónlistarskólann taka að sér tónmenntakennslu. Tveir kennarar eru í fæðingarorlofi og einn í ársleyfi. Skólastarf fer vel af stað og er með svipuðu sniði og síðustu ár. Á döfinni er að endurskoða skólastefnu og samræma í samvinnu við bæjaryfirvöld. Einnig er ætlunin að vinna markvisst að skólamati í vetur en tilgangurinn með því er að meta ýmsa þætti skólastarfsins og greina það sem gott er og það sem þarf að bæta og í framhaldinu verður unnin úrbótaáætlun. Nemendur, foreldrar og starfsfólk mun koma að matinu. Starfsdeildin verður áfram starfandi en hún hefur í för með sér aukin námsframboð á unglingastigi og gefur meiri möguleika á námi við hæfi. Skólinn tekur þátt í nýju dreifmenntaverkefni í vetur en það er unnið í samstarfi við skólana á Snæfellsnesi og skólana í Vesturbyggð. Hugmyndin er að samnýta kennara á svæðinu þannig að einn kennari getur kennt námsgrein í fleiri en einum skóla í einu og verður m.a. kennt gegnum fjarfundabúnað og vefumsjónarkerfi. Við munum nýta okkur dönskukennslu fyrir 10. bekk með þessu sniði í vetur. Kennsla með þessu sniði er góður undirbúningur fyrir nemendur sem fara í framhaldsskóla sem kenna með þessu sniði s.s. Fjölbrautaskóli Snæfellinga. Starfsfólk skólans vonast eftir góðu samstarfi við nemendur og foreldrasamfélagið og horfir jákvæðum augum til skólaársins. |
|
|
Þriðjudagur, 27. maí 2008 00:00 |
|
Hvað hafa 10. bekkingarnir okkar verið að gera eftir samræmdu prófin? Eftir samræmd próf hjá 10. bekkingum hefur dagskrá þeirra í skólanum verið með óhefðbundnum hætti eins og mörg undanfarin ár. Nemendur fengu m.a. námskeið í skyndihjálp, fræðslu frá lögreglu, fjármálakynningu í Kaupþingi banka, tóku þátt í ratleik fræddust um staðhætti í Skagafirði, voru einn dag í starfskynningu og fyrir höndum er óvissuferð. Nemendur fengu að velja í hvaða fyrirtæki eða stofnun hér í Grundarfirði þeir færu í starfskynningu. Þeir dreifðust á 10 fyrirtæki, dvöldu þar hluta úr degi og skiluðu síðan skýrslu um heimsóknina. Öllum sem tóku á móti nemendunum kom saman um að krakkarnir hefðu verið einstaklega kurteisir, áhugasamir og duglegir og gaman hefði verið að taka á móti þeim. Skýrslur nemendanna sýndu einnig að nemendurnir vour ánægðir og áhugasamir. |
|
Þriðjudagur, 27. maí 2008 00:00 |
|
Mánudaginn 19. maí var fáni reistur að húni við Grunnskóla Grundarfjarðar. Tilefnið var að þann dag mættu tilvonandi nemendur 1. bekkjar næsta skólaárs í vorskóla. Samstarf milli leikskóla og grunnskóla sem kallað er"Brúum bilið" hefur verið í gangi í allmörg ár og er vorskóli einn liður í þeirri dagskrá. Börnin koma í vorskóla í eina viku, tvo tíma á dag. Markmið hans er að létta nemendum að flytjast frá fyrsta skólastiginu, leikskólanum, yfir á það næsta. Í vorskólanum er leitast við að gefa börnunum innsýn í það hvernig skólastarfið verður næsta vetur. Börnin fengu að upplifa það helsta sem fram fer í skólanum á hefðbundnum skóladögum þar með talið nestistíma og frímínútur. Einnig sérgreinatíma eins og heimilisfræði, sund, textílmennt og tölvur. Síðasta heimsókn vikunnar var í "heilsdagsskóla" þar sem nemendur skoðuðu aðstöðu þeirr barna sem dvelja í dagvistun eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur. Börnin kynntust "skólavininum" Bjössa bangsa sem tók á móti þeim fyrsta daginn og hann mun fylgja þeim í skólanum næstu árin. Óhætt er að segja að vorskóladagarnir hafi tekist vel í alla staði og verið skemmtilegir bæði fyrir börnin og ekki síst kennarana. Vorskólavikunni lauk svo með foreldrafundi barnanna, sem er fyrsta skrefið í samstarfinu milli heimils og skóla. Farið var yfir það helsta sem börnin upplifðu í vorskólanum og um væntingar skólans til foreldra. Foreldrar fengu tækifæri til að skila skriflega sínum væntingum til skólans. Foreldrar voru hvattir til að undirbúa börn sín sem best í sumar til að geta tekist á við skólastarfið næsta vetur. Gaman er að segja frá því í lokin, að 100% mæting foreldra var á fundinn sem vonandi lofar góðu um áframhaldandi gott samstarf heimilis og skóla. Hjördís, Katrín, Kolbrún |
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 31 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 31 af 31 |