• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Páskaungar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 06. apríl 2010 08:52

Í byrjun mars kom Dóra stuðningsfulltrúi með 20 hænuegg í skólann.  Þetta voru íslensk
landnámshænuegg frá hænunum sem 4.bekkur ungaði út í fyrra.  Núna kom það í hlut 2. og 3.bekkjar að sjá um eggin. Sett voru 20 egg í útungunarvélina og þau látin vera þar í 21 dag, en þá eiga fyrstu ungarnir að koma. Við þurftum að passa vel upp á eggin, snúa þeim á hverjum degi og vökva reglulega í sérstakt hólf á vélinni til að viðhalda góðum raka.  Það fæddust 15 ungar og vöktu þeir mikla lukku hjá öllum í skólanum og fengum við líka heimsókn frá leikskólanum sem var mjög gaman.
Ungarnir fóru síðan í sveitina, út að Mýrum til hennar Álfheiðar og eru þar í góðu yfirlæti. Við ætlum fljótlega að fá að koma í heimsókn og skoða "börnin okkar". Fleiri myndir af páskaungunum er hægt að sjá í myndabankanum.  Þar veljið þið 1.-4.bekkur og skólaárið 09-10.

ungifordsida

 
Skólahreysti Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 23. mars 2010 08:22

Fimmtudaginn 18. mars síðastliðinn kepptum við í Vesturlandsriðlinum í Skólahreysti. Keppnin var haldin í Smáranum, Kópavogi og að venju var farið með 6 keppendur. Guðmundur Aron Guðmundsson og Elín Gunnarsdóttir kepptu í hreystigreinunum, Tomasz Weyer og María Rún Eyþórsdóttir kepptu í hraðabrautinni og Sveinn Pétur Þorsteinsson og Kristbjörg Fjeldsted fóru með sem varamenn. Krakkarnir stóðu sig ótrúlega vel og náðu besta árangri okkar skóla til þessa. Við lentum í 5. sæti yfir heildina af 11 liðum samtals, en mjög mjótt var á munum milli 3.,4., og 5. sætis.
20 aðrir nemendur fóru með sem áheyrendur á keppnina, ásamt kennara og skólastjóra og munaði um minna fyrir keppendur að hafa þennan stuðning.
Eftir keppnina var svo haldið af stað með keppendur og stuðningsmenn upp í Hafnarfjörð, en Svanur (okkar) Tryggvason hafði látið okkur fá pening og langaði með því að bjóða upp á mat eftir keppnina. Þar fengum við okkur sem sagt pizzahlaðborð sem vakti mikla lukku hjá öllum og kunnum við Svani okkar bestu þakkir fyrir.

myndskolahreysti

 
Frábærar árshátíðir Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Þriðjudagur, 16. mars 2010 18:05

Árshátíðir nemenda fóru fram 11. og 15. mars og óhætt er að segja að þær tókust mjög vel. Mikil vinna fer í undirbúning slíkra skemmtana og segja má að allir nemendur og starfsfólk skólans hafi lagt hönd á plóg.
Yngsta stigið setti upp mjög litríka og fjöruga sýningu með atriðum úr Ávaxtakörfunni þar sem allir nemendur úr 1.-4.b tóku þátt.
Miðstigið vann með þemað, norræn goðafræði. Kennarar settu saman þætti þar sem stiklað var á stóru og nemendur leiddu áhorfendur á vit goðanna í Ásgarði og þursanna í Jötunheimum á gamansaman og líflegan hátt.
Unglingastigsnemendur sýndu og sönnuðu hvað þeir búa yfir miklum sköpunarkrafti og hugmyndaauðgi því flest atriðin voru samin og hönnuð af þeim. Sú nýbreytni var hjá unglingastiginu að eftir sýningu fyrir almenning var hátíðarkvöldverður þar sem nemendum var boðið upp á mat fyrir vægt gjald. Sjálfboðaliðar úr foreldrahópnum sáu um að leggja á borð, bera matinn fram og ganga frá á eftir. Hljómsveitin Matti og Draugabanarnir buðu síðan upp á ball á eftir.
Stjórn foreldrafélagsins kom færandi hendi að morgni 16. mars og afhenti nemendum og starfsfólki blómvönd með hamingjuóskum og þökkum fyrir skemmtunina á frábærum sýningum.
Kærar þakkir eru færðar þeim fjölmörgu sem studdu og aðstoðuðu við sýningarnar.

foreldrar

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 32

Tilkynningar

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er komið á netið.  Hægt er að nálgast það hér hægra megin á síðunni.

 

EINKUNNARORÐ

METNAÐUR
GET- ÆTLA-SKAL

ÁNÆGJA
SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI

SAMVINNA
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.

ÁBYRGÐ
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR

meira

Að skoða síðuna núna

Það eru 5 gestir á síðunni núna