|
Forvarnardagur í Grunnskóla Grundarfjarðar |
|
|
|
Mánudagur, 10. nóvember 2008 17:56 |
|
Forvarnardagurinn var haldinn í þriðja sinn þann 6. nóvember. Nemendur í 9. bekk um allt land eru þátttakendur í forvarnardeginum. Nemendur í 9. bekk Grunnskóla Grundarfjarðar létu ekki sitt eftir liggja og dagskráin byrjaði á því að Tómas Freyr Kristjánsson, fulltrúi Ungmennafélagsins, kom í heimsókn. Hann afhenti nemendum upplýsingar um net-ratleik og gaf þeim penna. Tómas Freyr spjallaði síðan við nemendur um það sem Ungmennafélagið hefur upp á að bjóða og nemendur spurðu hann spurninga. Þar kom m.a. fram að mikill áhugi er meðal nemenda á að æfa handbolta. Eftir að Tómas kvaddi þá horfðu nemendur á myndband þar sem forseti Íslands, herra Ólafur Ragnar Grímsson, og fleiri þjóðþekktir einstaklingar töluðu til þeirra og gáfu góð ráð um það hvernig ætti að forðast áfengis- og vímuefni. Síðan kom að eiginlegri vinnu nemendanna en þeir áttu að ræða og svara spurningum um samveru, íþrótta- og æskulýðsstarf og að hvert ár skipti máli. Nemendur höfðu ákveðnar skoðanir á þessum málefnum og komu fram með marga góða punkta. Niðurstöður þessarar verkefnavinnu eru svo sendar til skipuleggjenda forvarnardagsins sem vinna síðan áfram með þær. Dagurinn endaði síðan á því að nemendur unnu veggspjöld úr umræðum dagsins. Nemendur 9. bekkjar voru ánægðir með daginn og það er engin spurning að forvarnardagurinn er gott framtak og skilar góðum árangri.
|
|
|
Ágætu foreldrar |
|
|
|
Miðvikudagur, 05. nóvember 2008 13:24 |
|
Eins og alþjóð veit eru fardagar hjá álfum, tröllum og jólasveinum á þrettánda degi jóla. Þá er venjan að halda brennu hér í sveit og fólk hvatt til að koma saman, brenna út jólin og kveðja jólasveinana og þá vætti sem eru á ferli. Nú í ár stefnir skólinn að því að allir nemendur skólans taki þátt í þrettándafagnaðinum. Nemendur munu undirbúa sig í skólanum fyrir jólin með því að læra söngtexta og lög sem tilheyra tímamótunum. Skólinn hefur ekki tök á því að láta nemendur búa sér til búninga fyrir tilefnið en foreldrar eru hvattir til að og koma sér upp viðeigandi búningum fyrir alla fjölskylduna. Ekki er verið að fara fram á fína og dýra búninga heldur er fólk hvatt til að nýta eitthvað sem það á í fórum sínum s.s. gömul föt, gamlar gardínur, teppi eða þess háttar. Hugsanlegt er að margir fari að þrífa og hreinsa til heima hjá sér um þessar mundir og því þótt rétt að senda fregnir af þessu nú til þess að nýtanlegar flíkur og efni lendi ekki í ruslagámnum.
|
|
Foreldradagur |
|
|
|
Miðvikudagur, 05. nóvember 2008 11:23 |
|
Ágætu foreldrar! Þriðjudaginn 11. nóvember verður foreldradagur og allir foreldrar eiga að hafa fengið viðtalstímum úthlutað. Sú nýbreytni verður í ár að foreldrar verða beðnir um að svara vefkönnun fyrir eða eftir viðtal. Könnunin samanstendur af 10 spurningum um líðan nemenda. Það er mjög mikilvægt að allir foreldrar gefi sér tíma til að svara þessari könnun en sambærileg könnun verður einnig lögð fyrir nemendur og kennara síðar í mánuðinum. Þetta er liður í mati á skólastarfi Grunnskóla Grundarfjarðar en á þriggja ára tímabili verða ýmsir þættir metnir sem lúta að skólastarfinu og gert er ráð fyrir að nemendur, foreldrar og starfsfólk taki þátt í því að svara stuttum könnunum tvisvar á ári. Því fleiri sem gefa sér tíma til að svara, því betri vísbendingar fást um þá þætti sem á að meta en allt er þetta gert til að bæta skólastarf og hag nemenda. Bestu kveðjur Skólastjóri |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 27 af 32 |