|
Óvænt heimskókn |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. maí 2010 12:10 |
|
Það er ekki ofsögum sagt að íþróttáhugi er mikill hér í Grundarfirði þessa vordagana. Fólk á öllum aldri sést hlaupandi um víðan völl og gerir krefjandi æfingar inn á milli. Auk þessa er ásóknin í íþróttahúsið og sundlaugina mikil. Þrátt fyrir þennan mikla íþróttaáhuga mannfólksins brá umsjónarmanni íþróttahússins í brún þegar músarkríli gerði sig líklegt til að spreyta sig í íþróttasalnum. Mýsla fór ekki að leikreglum og var henni vísað frá, ekki þó í sturtu. Henni var komið fyrir í glerbúri og færðir ávextir og annað góðgæti. Nemendur gátu virt þennan óboðna gest fyrir sér. Eftir góða máltíð var mýsla færð út í móa í nemendafylgd.

|
|
|
Danskennsla |
|
|
|
Miðvikudagur, 21. apríl 2010 09:22 |
|
Á mánudegi til miðvikudags í þessari viku fer fram danskennsla í öllum bekkjum grunnskólans. Danstímarnir eru í íþróttahúsinu á skólatíma nemenda en danssýning verður á miðvikudeginum kl. 15.00. Danskennari er Eva Karen Þórðardóttir Stjórn foreldrafélagsins hefur sýnt danskennslunni mikinn áhuga og lagt skólanum lið með fjárframlagi o. fl.
Allir eru velkomnir á danssýninguna í íþróttahúsinu á miðvikudag 21. apríl kl. 15.00

|
|
Söngleikur |
|
|
|
Þriðjudagur, 13. apríl 2010 08:18 |
|
SÖNGLEIKURINN Blúndubrók og brilljantín ... Those were the days!
Sýnt verður í Samkomuhúsi Grundarfjarðar eftirfarandi daga:
Miðvikudagur 14. apríl kl 20 - Frumsýning
Fimmtudagur 15. apríl kl. 20:00
Föstudagur 16. apríl kl. 20:00
Laugardagur 17. apríl kl. 16:00
Sunnudagur 18. apríl kl. 16:00
Miðasala fer fram hjá ritara Grunnskólans í síma 430-8550 og í síma 863-1670 eftir klukkan 16.
Miðaverð 2000 krónur en fyrir 12 ára og yngri 1000 krónur.
Með því að smella á krækjuna hér fyrir neðan getur þú séð smá kynningu á söngleiknum.
http://www.youtube.com/watch?v=6Lkbap-1WRI
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 32 |