|
Lús |
|
|
|
Þriðjudagur, 17. ágúst 2010 13:55 |
Til foreldra/forráðamanna nemenda. Þar sem lús hefur fundist hjá nemendum á grunnskólaaldri eru foreldrar vinsamlegast beðnir um að kemba vel hár barna sinna svo að uppræta megi lúsina sem fyrst. Best að það sé gert áður en skólinn byrjar til að koma í veg fyrir frekari smit. Nauðsynlegt er að kemba einu sinni til tvisvar á dag.
Skólastjóri |
|
|
Vorskólinn |
|
|
|
Föstudagur, 28. maí 2010 09:47 |
|

Í vetur hefur verið gott samstarf á milli leik- og grunnskóla eins og undanfarin ár. „Brúum bilið" verkefnið hefur fest sig í sessi og hafa elstu börnin í leikskólanum komið í nokkrar heimsóknir í grunnskólann í vetur. Dagana 17. - 21. maí var svo komið að vorskólanum. Íslenska fánanum var flaggað í tilefni af komu barnanna en það er ávallt mikil tilhlökkun hjá börnum, foreldrum og starfsfólki skólans þegar komið er að þessum tíma. Fjölbreytt dagskrá var þessa daga. Nemendur fengu meðal annars að prófa sund, smíðar, textílmennt, heimilisfræði og tölvur, að ógleymdu að fá að takast á við stærðfræðitengd viðfangsefni og stafaverkefni. Jafnframt fengu börnin tækifæri til þess að heimsækja heilsdagsskólann og krakkana sem þar eru. Það sem var þó mest spennandi hjá börnunum þessa daga voru nestið og frímínúturnar, kom meðal annars kvörtun um hvað þær væru stuttar. Við þökkum fyrir frábæra samveru og hlökkum til komandi hausts.
María Ósk Ólafsdóttir |
|
Börn og umhverfi |
|
|
|
Fimmtudagur, 06. maí 2010 12:13 |
|
Börn og umhverfi er heiti á námskeiði sem haldið er árlega fyrir nemendur í 6. bekk. Námsefni og skipulag kemur frá Rauðakrossi Íslands. Námskeiðið fór fram í grunnskólanum 28.-30. apríl. Kennarar á námskeiðinu voru Hildur Sæmundsdóttir ljósmóðir og Eydís Lúðvíksdóttir kennari og þroskaþjálfi. Á námskeiðinu læra nemendur ýmislegt um samskipti við ung börn á aldrinum 0-8 ára og umönnun þeirra. Fjallað er um þroska barna á hverju aldursári frá ungbörnum upp í 8 ára og hvaða leikir og leikföng hæfa hverjum aldri. Farið er yfir helstu orsakir slysa og hvernig á að varast slys og í framhaldi af því eru kennd undirstöðuatriði í skyndihjálp. Námskeiðið byggist á fræðslu, verkefnavinnu og verklegum æfingum. Mikil áhersla er lögð á að börn sem gæta yngri barna séu meðvituð um ábyrgð sína og séu góðar fyrirmyndir.

|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 32 |