|
Leikritið Devotion |
|
|
|
Fimmtudagur, 14. janúar 2010 09:32 |
|
Þann 7. janúar síðastliðinn fengum við unga leikara í heimsókn með leikrit fyrir nemendur í 8.-10. bekk sem nefnist Devotion en eins og segir í lýsingunni á því er það "hrátt, fyndið og ögrandi leikrit sem fjallar um stríð og átök milli einstaklinga og áhrif þessara þátta á ungt fólk. Það býður upp á tækifæri fyrir áhorfandann að íhuga eigin skoðanir og hugmyndir hvað varðar ýmiskonar árekstra milli hópa og einstaklinga og þau vandamál sem þessir árekstrar geta valdið"
Leikendur hafa allir skólafélagar frá leikslistarskólanum Rose Bruford College í London og hefur þessi hóur sett upp sýningar víða um England og Ísland.
Eftir leiksýninguna buðu þau upp á hláturjóga sem vakti mikla kátínu meðal nemenda.

|
|
|
Ofurhetjuþema á unglingastigi |
|
|
|
Mánudagur, 11. janúar 2010 14:28 |
|
Mánudaginn 11. janúar var ofurhetjuþema á unglingastiginu. Í morgun voru mættar margar ofurhetjur í skólann Gaman var að sjá krakkana í mismunandi ofurhetjubúningum.

|
|
Þriðjudagur, 05. janúar 2010 14:08 |
|
Þrettándagleði í Grundarfirði Miðvikudaginn 6. janúar Fjölskyldugleði með kyndilgöngu, söng og gleði
Gamanið hefst klukkan 18.30 við Netaverkstæði G.Run þar sem við lærum vikivakadans og söng, heyrum jafnvel eina sögu.
Göngum með kyndla fylktu lið frá Netaverkstæðinu að bílastæðinu við Grunnskóla Grundarfjarðar. Þar taka á móti okkur álfakonungur og -drottning. Syngjum og dönsum saman.
Fólk er hvatt til að - koma með blys eða kyndil - vera í búning við hæfi - taka með sér heitt kakó á brúsa og bolla með.
Virkjum dans og söngvöðva, skemmtum okkur saman
Stjórnin |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 32 |