• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Hundraðdagahátíð hjá 1.bekk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 29. janúar 2010 11:06

Í dag héldu börnin í 1. bekk upp á það að þau eru búin að vera í skólanum í hundrað daga. Mikil spenna var komin í bekkinn í vikunni þegar við fórum að nálgast töluna hundrað. Fyrir hvern dag settu þau eitt prik, í hvert sinn sem 10 prik voru komin í krukkuna þá festu við þau saman og mynduðum þannig einn tug. Þetta er skemmtileg vinna til þess að vinna með tugi og einingar í stærðfræði. Í tilefni dagsins mættu nokkrir nemendur í grímubúningum og önnur í gulum fötum en við vorum einnig að halda upp á sólarkomuna. Þau fengu að koma með sparinesti í tilefni dagsins en einnig var þeim boðið upp á hundraðköku og snakk.

Börnunum fannst þetta góður og skemmtilegur dagur.

 

hundraddagar

 
Gjöf frá VÍS Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 27. janúar 2010 09:07

Í síðustu viku komu þær Olga og Guðrún frá Arion banka í 1. bekk og gáfu þeim endurskinsvesti frá VÍS. Þökkum við þeim kærlega fyrir þessa höfðinglegu gjöf.

Krakkarnir í 1.bekk

vis

 
Tónlist fyrir alla Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Fimmtudagur, 21. janúar 2010 09:58

Listamennirnir sem komu að þessu sinni voru Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari, og Páll Eyjólfsson, gítarleikari.  Þau fóru í smá "tónlistarferðalag" með nemendum. Byrjað var á Ítalíu, landi fiðlunnar, og leikinn tónlist eftir Vivaldi og fiðlusnillinginn Paganini. Þau komu við á Spáni, landi gítarsins, og spiluðu verk eftir Sarasate og Ibert þar sem spænsk flamenco áhrif voru greinileg. Einnig léku þau argentínskan tangó og yngri nemendurnir fengu að heyra norska Eurovision lagið frá því í fyrra. Tónlistafólkið var mjög ánægt með móttökurnar hérna og hrósuðu nemendunum fyrir góða og skemmtilega framkomu.

tonlist

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 9 af 32

Tilkynningar

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er komið á netið.  Hægt er að nálgast það hér hægra megin á síðunni.

 

EINKUNNARORÐ

METNAÐUR
GET- ÆTLA-SKAL

ÁNÆGJA
SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI

SAMVINNA
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.

ÁBYRGÐ
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR

meira

Að skoða síðuna núna

Það eru 4 gestir á síðunni núna