• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Starfsdagur og foreldraviðtöl Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 15. febrúar 2010 14:00
Miðvikudagur 17. febrúar verður starfsdagur og er þá frí hjá nemendum í skólanum og fimmtudaginn 18. febrúar eru foreldraviðtöl. Þá eiga nemendur að mæta í skólann með foreldrum sínum. Búið er að senda heim miða um
hvenær viðtalið fer fram.   Ef eitthvað er óljóst hafið þá samband við ritara í síma 430-8550.
 
Öskudagsskemmtun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 08. febrúar 2010 13:03

oskudagur1

 
Upplestrarkeppni í 7. bekk Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 08. febrúar 2010 12:55

Hin árlega upplestrarkeppni í 7. bekk fór fram í Grundarfjarðarkirkju fimmtudaginn 4. febrúar. Nemendur hafa verið að undirbúa sig í nokkurn tíma undir traustri stjórn og leiðsögn Þorbjargar íslenskukennara.  
Samkoman hófst með því að Sonja Sigurðardóttir lék á píanó verkið Sonatin opus 168 eftir Dia Belli. Nemendurnir lásu gamanmál og síðan lásu þau ljóð að eigin vali. Keppnin fór mjög vel fram og var dómnefnd ekki öfundsverð af hlutverki sínu að velja þrjá bestu lesarana úr þessum góða hópi því allir stóðu sig mjög vel.
Miðurstaðan var sú að í 3. sæti varð Emil Robert Smith, í 2. sæti Mímir Kjartan Ástvaldsson og í 1. sæti Jóhanna Kristín Sigurðardóttir
Dómnefndina skipuðu Gunnar Kristjánsson og Lína Hrönn Þorkelsdóttir.
Skólinn þakkar nemendum 7. bekkjar fyrir góðan lestur og prúðmannlega framkomu og óskar þeim öllum til hamingju með góða frammistöðu. Vinningshöfunum er óskað velgengni í keppninni við jafnaldra sína frá Snæfellsbæ og Stykkishólmi sem fram fer í Grundarfjarðarkirkju miðvikudginn 10. mars kl. 20.

upplestrarkeppnin

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 8 af 32

Tilkynningar

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er komið á netið.  Hægt er að nálgast það hér hægra megin á síðunni.

 

EINKUNNARORÐ

METNAÐUR
GET- ÆTLA-SKAL

ÁNÆGJA
SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI

SAMVINNA
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.

ÁBYRGÐ
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR

meira

Að skoða síðuna núna

Það eru 5 gestir á síðunni núna