• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Stóra upplestrarkeppnin Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 15. mars 2010 16:42

Lokahátíðin á Snæfellsnesi fór fram í Grundarfjarðarkirkju 10.mars. 9 fulltrúar frá grunnskólunum á norðanverðu Snæfellsnesi lásu til úrslita, 3 frá hverjum skóla. Allir keppendur fengu ljóðabók eftir Þorstein frá Hamri að gjöf. Sparisjóður Ólafsvíkur gaf peningaverðlaun fyrir þrjú efstu sætin, Mjólkursamsalan í Búðardal og Brauðgerð Ólafsvíkur gáfu veitingar. Nemendur stóðu sig allir mjög vel og var ekki auðvelt fyrir dómarana að velja þrjá úr þessum frambærilega hópi.
Úrslitin urðu þau að Silja Katrín Davíðsdóttir, Stykkishólmi varð í fyrsta sæti, Marteinn Gíslason, Snæfellsbæ í öðru sæti og Brimrún Birta Friðþjófsdóttir, Snæfellsbæ í þriðja sæti.

upplestrarkeppnin2

 

 
Stjakar fyrir friðarljós til sölu! Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 15. mars 2010 16:40

Eitt af verkefnum vetrarins í starfsdeild Grunnskóla Grundarfjarðar var að hanna og smíða friðarljósastjaka úr járni sem setja má við leiði og eru þeir nú til sölu. Hægt er að panta stjaka með því að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. en starfsdeildarnemendur verða einnig með stjakana til sölu í Samkaupum föstudaginn 19. mars og kostar stykkið kr. 7.500. Þeir smíða einnig stjaka sem standa á þremur fótum og hægt að nota hvar sem er.

stjakar

 
Árshátíð Grunnskóla Grundarfjarðar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 12. mars 2010 08:30

Árshátíð nemenda í 1.-7.bekk verður mánudaginn 15. mars í samkomuhúsinu kl. 17:30. 
1.-4.bekkur flytur þætti úr Ávaxtakörfunni og 5.-7.bekkur kafla úr norrænni goðafræði.

Allir hjartanlega velkomnir.

Allur aðgangseyri rennur í ferðasjóð nemenda.

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 5 af 32

Tilkynningar

Skóladagatal fyrir skólaárið 2010-2011 er komið á netið.  Hægt er að nálgast það hér hægra megin á síðunni.

 

EINKUNNARORÐ

METNAÐUR
GET- ÆTLA-SKAL

ÁNÆGJA
SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI

SAMVINNA
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.

ÁBYRGÐ
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR

meira

Að skoða síðuna núna

Það eru 4 gestir á síðunni núna