• Decrease font size
  • Default font size
  • Increase font size
  • default color
  • red color
  • green color
Ný heimasíða Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Miðvikudagur, 16. febrúar 2011 14:24

Ný heimasíða Grunnskóla Grundarfjarðar er komin á netið.  Slóðin er grundo.is

Gamla síðan verður virk um sinn en verður ekki uppfært meir.

Kv. Hugrún

grundo.is

 
Nemendakönnun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Mánudagur, 14. febrúar 2011 10:54
17. febrúar nk. er fyrirhugað að gera könnun meðal nemenda í 5. - 7. bekk á Íslandi í samræmi við áherslur menntamálaráðuneytisins og samkvæmt rannsóknaráætlun um hagi og líðan ungs fólks á Íslandi 2011 til 2016. Samhliða verður lögð fyrir örstutt könnun meðal nemenda í 8. til 10. bekk um vímuefnaneyslu. Hvort tveggja er beint framhald rannsókna undanfarinna ára og sér Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík um framkvæmdina að vanda.

Markmiðið er annars vegar að rannsaka hagi og líðan nemenda í 5. - 7. bekk (tekur um 30 mínútur í svörun) og hinsvegar vímuefnaneyslu nemenda í 8. - 10. bekk (tekur um 10 mínútur í svörun).
Rannsóknin er unnin að tilstuðlan menntamálaráðuneytisins og sveitarfélaganna í landinu. Upplýsingarnar úr rannsóknunum eru í dag grunnur að vinnu nær allra þeirra sem vinna að málefnum ungs fólks á Íslandi, hvort heldur sem er ráðuneyta, sveitarfélaga, samtaka og einstaklinga.
Foreldrar sem ekki vilja að börn þeirra taki þátt í þessari könnun hafi samband við ritara í síma 430-8550 fyrir kl. 9:00 fimmtudaginn 17. febrúar.

Skólastjóri
 
Til foreldra/forráðamanna nemenda Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa
Föstudagur, 11. febrúar 2011 10:51

Mánudaginn 14. febrúar er starfsdagur í grunnskólanum og því frí hjá nemendum. Þemadagar verða í skólanum 21. – 24. febrúar og vetrarfrí að því loknu föstudaginn 25. febrúar.

Skólastjóri

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

Tilkynningar

Starfsdagur mánudaginn 14. febrúar - frí hjá nemendum.

EINKUNNARORÐ

METNAÐUR
GET- ÆTLA-SKAL

ÁNÆGJA
SÁ SEM HEFUR GAMAN AF ÞVI SEM HANN GERIR NÆR ÁRANGRI

SAMVINNA
ENGINN GETUR ALLT, ALLIR GETA EITTHVAÐ.

ÁBYRGÐ
HVER ER SINNAR GÆFU SMIÐUR

meira

Að skoða síðuna núna

Það eru 3 gestir á síðunni núna